Nokia 808 PureView - Um NFC

background image

Um NFC
Með nándartengingu (NFC) er auðvelt og skemmtilegt að tengjast og deila efni með

öðrum. Nokia-símar og aukahlutir sem styðja NFC tengjast þráðlaust þegar þeir eru

látnir snertast.

Með NFC er hægt að:

Deila efni sem þú hefur búið til milli tveggja samhæfra síma sem styðja NFC.

Tengjast við samhæfan Bluetooth-aukabúnað sem styður NFC, til dæmis höfuðtól

eða þráðlausan hátalara.

Greiða með símanum ef þjónustuveitan styður það.

Snerta merki til að fá meira efni í símann eða aðgang að þjónustu á netinu.

Spila fjölspilunarleiki við eigendur annarra samhæfra síma sem styðja NFC.

NFC-svæðið er aftan á símanum, fyrir neðan myndavélina. Snertu aðra síma, aukahluti

eða lesara með NFC-svæðinu.

Hægt er að nota NFC þegar kveikt er á skjá símans. Þú kannt að geta greitt með

símanum eða notað hann sem miða jafnvel þegar hann er læstur, og fer það eftir

þjónustuveitunni þinni.

16

Síminn tekinn í notkun

background image

Þú færð nánari upplýsingar með því að horfa á kennslumyndskeið um NFC í símanum

þínum.

Ábending: Hægt er að hlaða niður meira efni sem NFC styður úr Nokia-versluninni.