Ábendingar um myndskeið
Ýttu á myndavélartakkann til að opna myndavélina.
•
Til að útkoman verði sem best er nauðsynlegt að loka öllum forritum fyrir
upptöku.
•
Taktu upp á gagnageymslu símans ef hægt er.
•
Ef myndskeið er tekið upp á minniskort skaltu nota samhæft, hraðvirkt, hágæða
microSD-minniskort. Mælt er með að notuð séu microSD-minniskort í flokki 4 (32
Mbit/s (4 MB/s)) eða hærri fyrir 360p og 720p myndskeið. Mælt er með minniskorti
í flokki 6 (80 Mbit/s (10 MB/s)) fyrir myndskeið í háskerpu (1080p).
Fyrir fyrstu notkun skaltu taka öryggisafrit af öllum mikilvægum gögnum sem eru
á kortinu og nota símann til að forsníða kortið, jafnvel þótt það hafi verið forsniðið
eða notað í Nokia-síma áður. Þegar minniskort er forsniðið er öllu efni á því eytt.
Ef minniskortið virkar hægar með tímanum skaltu taka öryggisafrit af öllum
mikilvægum gögnum sem eru á kortinu og nota símann til að forsníða það.